...jæja, þá eru teikningarnar fyrir leikinn svo til búnar og ég get lagt það til hliðar og farið að einbeita mér eingöngu að hönnunarverkefninu því það er jú, í næstu viku og leikurinn þar á eftir. Nú þarf ég að leggja höfuðið í bleyti varðandi fína heimasíðu og logo fyrir þetta fyrirtæki. Svo þurfum við líka að gera smá ritgerð eða svona "analysingu" á góðri íslensku. Svo ég get lesið í sólinni á svölunum mínum, já, og jafnvel teiknað uppkast af heimasíðunni, það er ágætt því það lítur út fyrir sólríkan og góðan dag. Leiðinlegt að heyra að veturinn er kominn á Ísland, vonandi verður hann nú stuttur.....og í Guðs bænum ekki senda hann hingað og eyðileggja vorið.
....farin í sólina.....
-srosin-
....farin í sólina.....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home