s

mánudagur, apríl 28, 2003

Verð að láta þennan fjúka....

Ég verð að segja hér svolitla sögu sem mér skilst að sé sönn og hafi átt sér stað fyrir fáum vikum
í stórum kaupstað við langan fjörð á miðju Norðurlandi.

.:: Svo bar til að maður nokkur kom að bílalúgu.
Stúlkan sem var þar við afgreiðslu spyr hvað megi gera fyrir hann.
-"Áttu sundsmokka?" segir maðurinn.
Hún jánkar því, fer og leitar, en finnur ekki neina sérstaka sundsmokka, spyr starfssystur sína,
sem er ekki viss, en bendir henni á að taka bara smokkakassann og láta manninn velja,
hann þekki þetta sjálfsagt betur.
Stúlkan tekur smokkakassann, opnar lúguna og réttir manninum og spyr hann hvort vilji eitthvað af þessu.
-"Hvað ertu að meina? spyr maðurinn forviða.
-"Nú, varstu ekki að spyrja um sundsmokka?" segir stúlkan.
-"Ég var að biðja um Sunnudagsmoggann!" sagði maðurinn þá. ::.

...hahahahhahahaha....

-srosin-


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home