s

föstudagur, maí 07, 2004

Byrjaði daginn með að sofa aðeins lengur

Já, fékk að sofa aðeins, þökk sé góðu strákunum mínum. Í dag er frídagur, Store Bededag, dagurinn sem Baunarnir biðja stórra bæna... eða drekka bjór... því það er líka Föstudagur... kannski ætti þetta að heita Stóri Öldagurinn í staðinn. Allaveganna er þetta frídagur hvað svo sem dagurinn heitir. Eftir að hafa sofið út þá kveikti ég á tölvunni og fór að vinna í ritgerðinni minni, skrifa um Álfa og þeirra heimkynni. Ef einhver þarna úti er sérstakur sérfræðingur í álfum eða tröllum og hefur jafnvel séð þessar verur, endilega senda mér línu.

Fékk svo slóðina á síðu hjá nýjum frænda mínum. Og hér er einnig sonur Karenar og Binna.

En nú er bara halda áfram í álfaleik.

~*~Srosin~*~

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home