Jæja, þar fór það!
...og það var næstum búið að græja Egilshöllina til að hýsa næsta Eurovision! En úff, ég er nú barasta pirruð... þetta var svona nett "flashback" á góðri íslensku. Í fyrra fylgdumst við með forkeppninni og héldum náttúrulega með Tomma "frænda", honum var sko spáð sigri og alles eins og Selmu var spáð þetta árið... sko í forkeppninni.... en jú, aftur gerist það að Austur-Evrópu þjóðirnar virðast hafa þessa keppni alveg í höndum sér... sex af tíu löndum þaðan komust áfram! Er sammála Lilju, það ætti bara að skipta þessu í tvær keppnir. Held að við komumst aldrei upp úr þessari forkeppni þegar þessar þjóðir eru með :(
Já, ég er sko svekkt en veit um einn sem var sko svekktari í gær. Hann sonur minn er nú ekki þekktur fyrir að vera lítið tapsár.... úff í gær... ég held að það hafi verið tár... greyið skildi ekkert í þessu... sagði við okkur: "pantiði flugfar og ég ætla sko að fara með umslag sem stendur Selma svo hún vinni!"
Ætli öllum Euro-partýum sé þá frestað ??? Já, nú tapar Vífilfell... ekkert verður úr "stærstuogmestueinusinniáárigos-og-snakksölunni"
S r o s i n

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home