s

miðvikudagur, maí 28, 2008

Blogg hmm


Já, það er nú spurning hvort þetta sé ekki bara útdauð síða, svei mér þá, þarf að íhuga það hvort maður hangi í þessu lengur...

En allaveganna síðan síðasta bloggi hefur þetta gerst:

  • Ingvinn varð ári eldri
  • Undirrituð varð lasin (surprise)
  • Nóalingurinn varð lasinn (surprise surprise)
  • Ingvinn skundaði til Odense til að verja Mastersritgerð sína og náði :)
  • Högni Hallgrímur varð lasinn (surprise surprise surprise)
  • Undirrituð bauð hinum nýja "Meistara" út að borða á Argentínu mmmm
  • Náðum heilsunni
  • Horfðum á Evrósjón ásamt grillkompaníinu úr Úlfarsárdalnum
  • Undirrituð varð lasin, fékk sýkingu og búin að liggja í bælinu japlandi pensilin (surprise sur..æ nenni ekki að skrifa þetta)
  • Nökkvinn keppti í fótbolta og vann alla sína leiki
  • Pöntuð var ferð til Parísar fyrir okkur hjónaleysurnar og stutt er í brottför svo betra er að ná sýkingunni burt hið fyrsta!
  • Já og náttúrulega hefur ekkert verið kíkt í húsSportsins en það bíður bara þar til heilsan kemur á ný!

Jahá, svona er það nú.

Hilsen, S r o s i n

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home