s

þriðjudagur, október 07, 2008

Spurning að fara draga fram spilastokkinn, gamla

Ég fékk skondið símtal eitt kvöldið í matartímanum offfkorrrss.

Ólafur : Sigurrós, sæl

Ég: Já, sæll (eldandi, með öskrandi börn í bakgrunninum)

Ólafur: Já, þú þekkir mig nú ekki en ég heiti Ólafur... verð að segja þú átt rosalega flottan afmælisdag, sama dag og ég, til hamingju með afmælið um daginn.

Ég: ok... já, til hamingju sjálfur

Ólafur: Má ekki bjóða þér..

Ég: (greip fram í um leið og ég heyrði "bjóða þér") ha, nei, veistu ég hef ekki áhuga..

Ólafur: Má ég ekki bjóða þér áskrift að Stöð 2 á góðum kjörum...bla bla

Ég: Nei, veistu ekki að það er krepputíð... maður splæsir ekki í svoleiðis lúxus.

Ólafur: Er ekki einmitt tilvalið að þjappa fjölskyldunni svoldið saman þá á svona tímum... eiga svona "quality time"

Ég: Ha, nei, hér drögum við sko bara upp gamla góða spilastokkinn og spilum í kreppunni.

Ólafur: Jæja, þakka þér samt fyrir...

Ég: Já, sæll, Ólafur.

Ég held að þetta hafi verið Ólafur sjálfur úr Dagvaktinni :)

S r o s i n

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home